• Go to navigation_is
  • Go to content_is
AstraZeneca island

Breadcrumb_is

  • Heim
  • Lyf
  • Öndunarfæralyf

Astrazeneca Global Websites_is

  • AstraZeneca websites

title_is

  • Heim
  • Starfsfólk
  • Rannsóknir
  • Gagnlegar Vefsíður
  • Lyf
    • Miðtaugakerfið
    • Hjarta- og æðasjúkdómar
    • Meltingarfærakerfið
    • Krabbamein
    • Verkir og verkjameðferð
    • Öndunarfæralyf
    • Sýklalyf
  • Sitemap

Öndunarfæralyf

Meðhöndlun sjúkdóma í öndunarfærum er eitt af brýnustu verkefnum heilbrigðismála. Tíðni sjúkdóma eins og til að mynda astma, langvinnrar lungnateppu (COPD) og ofnæmisbólgu í nefi, fer vaxandi. Vandamál vegna vangreiningar og ónógrar meðhöndlunar má finna víða um heimsbyggðina.

AstraZeneca framleiðir fjölbreytt úrval af framsæknum lyfjum og hjálpartækjum til innöndunar, sem hönnuð eru til að hjálpa heilbrigðisstarfsfólki við að veita sjúklingum úrvalsumönnun. Tækið Turbuhaler, sem ætlað er til að anda að sér lyfjum í duftformi, gegnir lykilhlutverki í framleiðslu okkar.

Meginlyf AstraZeneca

Nánari upplýsingar um lyf okkar er hægt að nálgast með því að smella á lyfjaheitin hér fyrir neðan.
  • Accolate (zafirlukast)
  • Bricanyl (terbutaline)
  • Oxis (formoterol)
  • Pulmicort (budesonide)
  • Rhinocort (budesonide)
  • Symbicort (budesonide/ formoterol)

Úðatæki fyrir lyf AstraZeneca

  • NES-Spacer
  • Turbuhaler

Athygli skal vakin á því að upplýsingar um lyfin á íslensku eiga við á Íslandi og eru í samræmi við samþykktir Lyfjastofnunar.

Accolate (zafirlukast)

Accolate (zarfirlukast) er leukotrien viðtakahemill (LTRA) í töfluformi og oftast notaður sem viðbótarmeðferð við astma. Lyfið hamlar móti virkni ákveðinna efna í líkamanum, sem valda herpingu í öndunarfærum og auka slímmyndun í lungum og bólgum í öndunarvegi.
Sérlyfjaskrártexti

Bricanyl (terbutaline)

Bricanyl (terbutaline) er skjótvirkt og stuttverkandi berkjuvíkkandi lyf (beta2-agónisti), sem notað er eftir þörfum við einkennum astma og gegn bráðaandnauð í elnun. Bricanyl má einnig nota í meðferð á langvinnri berkjubólgu, lungnaþembu og öðrum kvillum í öndunarfærum, þar sem berkjuþrenging er vandamál, til dæmis í langvarandi lungnateppu (COPD).
Bricanyl Retard: Sérlyfjaskrártexti

Oxis (formoterol)

Oxis (formoterol) er skjótvirkt og langverkandi berkjuvíkkandi lyf (betaörvi) við astma, sem gefa má einu sinni eða tvisvar á dag, oftast ásamt bólgueyðandi innöndunarstera. Lyfið má einnig gefa eftir þörfum við astmaköstum og þá sem viðbót við viðhaldsmeðferð.
Sérlyfjaskrártexti

Pulmicort (budesonide)

Pulmicort (budesonide) er eitt af fremstu astmalyfjum í heimi. Lyfið er bólgueyðandi barksteri til innöndunar, oftast notað einu sinni til tvisvar á dag sem grunnmeðferð við astma. Pulmicort er einnig ætlað sjúklingum með astma, sem þurfa að nota barkstera að staðaldri til meðhöndlunar á undirliggjandi bólgu.
Sérlyfjaskrártexti

Rhinocort (budesonide)

Rhinocort (budesonide) er bólgueyðandi barksteri sem notaður er einu sinni á dag við ofnæmisbólgum í nefi og fyrirbyggjandi gegn sepageri í nefi (nasal polyposis) og eftir sepanám (polypectonomi). Lyfið er einnig notað við árstíðabundnum ofnæmisbólgum í nefi (heymæði) og gegn ofnæmisbólgum vegna rykmaura.
Lyf – Notkunarsvið
Rhinocort Aqua: Sérlyfjaskrártexti , Rhinocort Turbuhaler: Sérlyfjaskrártexti

Symbicort (budesonide/formoterol)

Symbicort (budesonide/formoterol) inniheldur, í sama innöndunartækinu (Turbuhaler), barksterann budesonide ásamt skjót- og langverkandi berkjuvíkkandi lyfiinu formoterol. Symbicort er ætlað til reglulegrar meðhöndlunar á astma þegar samsett lyfjameðferð á við (barksteri til innöndunar og langvirkur berkjuvíkkandi betaörvi), þegar ekki næst full stjórnun á sjúkdóminum með barkstera til innöndunar og stuttverkandi betaörva eftir þörfum, eða þegar full stjórnun hefur náðst á sjúkdómnum með bæði barkstera til innöndunar og langverkandi betaörva. Symbicort gefur kost á að sníða meðferð að þörfum sjúklingsins.
Symbicort Turbuhaler: Sérlyfjaskrártexti , Symbicort forte Turbuhaler: Sérlyfjaskrártexti , Symbicort mite Turbuhaler: Sérlyfjaskrártexti

Nes-Spacer

Nes-Spacer er innöndunarbelgur úr stáli fyrir astmalyf, hannaður til að hámarksskammtur af lyfinu skili sér til lungnanna. Stálið er laust við rafhleðslu og því festist lyfið ekki innan í belgnum. Nes-Spacer má nota þegar lyf er gefið úr þrýstistauk (pMDI).
Sérlyfjaskrártexti

Turbuhaler

Turbuhaler er innöndunartæki sem gefur marga skammta af lyfi í þurru formi til innöndunar. Tækið er auðvelt í notkun og hefur einstaka kosti. Turbuhaler var hannað sérstaklega til að komast hjá notkun drif- og burðarefna (t.d. CFC) og annarra aukaefna. Í tækinu er fjölskammtakerfi sem er forhlaðið, auðvelt í notkun og krefst ekki samhæfingar á dælingu og innöndun.
Sérlyfjaskrártexti

  • Ítarleg leit

Quick Links_is

  • Fréttir
  • Fjárfestar

Page Tools_is

  • Print_is
  • Bookmark this page_is

Legal notices_is

  • Einkarettur
  • Lagalegar upplysingar
  • © AstraZeneca 2010