• Go to navigation_is
  • Go to content_is
AstraZeneca island

Breadcrumb_is

  • Heim
  • Lyf
  • Verkir og verkjameðferð

Astrazeneca Global Websites_is

  • AstraZeneca websites

title_is

  • Heim
  • Starfsfólk
  • Rannsóknir
  • Gagnlegar Vefsíður
  • Lyf
    • Miðtaugakerfið
    • Hjarta- og æðasjúkdómar
    • Meltingarfærakerfið
    • Krabbamein
    • Verkir og verkjameðferð
    • Öndunarfæralyf
    • Sýklalyf
  • Sitemap

Verkir og verkjameðferð

AstraZeneca er leiðandi í framleiðslu á svæfingalyfjum sem ekki eru til innöndunar og framleiðir auk þess ýmis staðdeyfilyf, bæði nýleg og einnig eldri og vel þekkt, sem aðlagast bæði þörfum heilbrigðisstarfsfólks og sjúklinga. Sífelldar rannsóknir eru í gangi sem miða að því að setja á markað ný og framsækin lyfjaform.

Nánari upplýsingar og aðgangur að sérlyfjaskrártexta fæst með því að smella á lyfjaheitin hér að neðan.

Helstu lyf

Nánari upplýsingar og aðgangur að sérlyfjaskrártexta fæst með því að smella á lyfjaheitin hér að neðan.
  • Carbocaine (mepivacaine)
  • Diprivan (propofol)
  • EMLA (Eutectic Mixture of Lidocaine and Prilocaine)
  • Marcaine/ Sensorcaine (bupivacaine)
  • Naropin (ropivacaine)
  • Xylocaine (lidocaine)

Athygli skal vakin á því að upplýsingar um lyfin á íslensku eiga við á Íslandi og eru í samræmi við samþykktir Lyfjastofnunar.

Carbocaine (mepivacaine)

Carbocaine (mepivacaine) er staðdeyfilyf sem hefur meðallangan verkunartíma (1.5 – 2.5 klst). Carbocaine er skjótvirkt staðdeyfilyf af amíðflokki. Það má nota á ýmsan hátt til deyfinga, t.d. til staðdeyfingar, bæði til leiðsludeyfingar, staðbundinnar deyfingar og epidural deyfingar. Carbocaine hefur verið á markaði síðan 1960.
Sérlyfjaskrártexti

Diprivan (propofol)

Diprivan (propofol) er svæfingalyf til notkunar í æð. Það er ætlað til innleiðslu og viðhalds svæfinga hjá fullorðnum og börnum og er eitt mest selda svæfingalyfið í heiminum. Síðan það var sett á markað árið 1986 hefur Diprivan verið notað á yfir 330 milljónir sjúklinga í heiminum .

Diprivan hentar sérstaklega vel við aðgerðir á göngudeildum og einkareknum skurðstofnum, þar sem sjúklingurinn þarf að komast heim sem fyrst. Sjúklingar svæfðir með Diprivan vakna yfirleitt hressir fljótlega eftir að gjöf lyfsins er hætt.
Tíminn styttist sem inniliggjandi sjúklingar á spítölum þurfa að vera á vöknun eftir svæfingu og þeir komast fyrr á sína deild.

Lyfið má einnig nota til slævingar við rannsóknir og/eða aðgerðir með eða án staðdeyfingar (leiðsludeyfingar), og einnig til slævingar hjá fullorðnum á gjörgæsludeildum.
Sérlyfjaskrártexti

EMLA

EMLA (Eutectic Mixture of Lidocaine and Prilocaine) er staðdeyfilyf á húð. Það er ætlað til staðdeyfingar á óskaddaðri húð. EMLA er notað til þess að koma í veg fyrir verki við nálastungur, þegar æðaleggjum er komið fyrir og við aðgerðir á húð og kynfæraslímhúð. Einnig má nota það til að minnka eða koma í veg fyrir sársauka við hreinsun á fótasárum. EMLA kom fyrst á markað 1984 og er nú fáanlegt bæði sem krem og lyfjaplástur. Hægt er að kaupa 2 stk. pakkningu með EMLA plástri án lyfseðils í lyfjaverslunum.
Sérlyfjaskrártexti

Marcaine (bupivacaine)

Marcaine (bupivacaine) er amíð með langvarandi staðdeyfiverkun. Það er ætlað til leiðsludeyfingar þar sem óskað er langrar verkunar, deyfingar fyrir skurðaðgerðir og í meðferð við bráðaverkjum. Marcain er af amíðflokki staðdeyfilyfja og er hægt að nota það við ýmsar aðgerðir, í staðdeyfingu, við taugarof, epidural hemil og speglun á liðum. Marcain Spinal og Marcaine Spinal Heavy eru notuð við mænudeyfingar, einkum við aðgerðir á ganglimum, og við fæðingar.
Marcain adrenalin: Sérlyfjaskrártexti , Marcain spinal: Sélyfjaskrártexti

Naropin (ropivacaine)

Naropin (ropivacaine) er langverkandi staðdeyfingar- og verkjalyf. Það er notað við staðdeyfingar í aðgerðum, t.d. epidural deyfingu við skurðaðgerðir, þ.m.t. við keisaraskurð, deyfingu á stórtaugum og leiðslu- og íferðardeyfingu.

Naropin er einnig notað sem bráð verkjadeyfing, sem stöðugt epidural innrennsli eða bólus gjöf með jöfnu millibili, t.d. eftir skurðaðgerð eða vegna verkja í fæðingu. Einnig leiðslu- og íferðardeyfing.
Sérlyfjaskrártexti

Xylocaine (lidocaine)

Xylocaine (lidocaine) er staðdeyfilyf sem er til í margs konar lyfjaformi. Xylocaine er í amíðflokki staðdeyfilyfja og er núna mest selda staðdeyfilyfið í heiminum. Xylocaine er til í eftirfarandi lyfjaformum:
Xylocain stungulyf er notað til staðdeyfingar og leiðsludeyfingar. Einnig staðbundin bláæðadeyfing.
Xylocain adrenalin stungulyf er eitt algengasta staðdeyfilyfið sem notað er við tannaðgerir, s.s. viðgerðir, tanndrátt, og minniháttar aðgerðir á tannholdi.  Xylocain adrenalin stungulyf er einnig notað við almenna staðdeyfingu og leiðsludeyfingu.
Til útvortis notkunar er Xylocain til í ýmsum lyfjaformum, t.d. úði, hlaup, krem og mixtúra.
Sérlyfjaskrártexti

  • Ítarleg leit

Quick Links_is

  • Fréttir
  • Fjárfestar

Page Tools_is

  • Print_is
  • Bookmark this page_is

Legal notices_is

  • Einkarettur
  • Lagalegar upplysingar
  • © AstraZeneca 2010