• Go to navigation_is
  • Go to content_is
AstraZeneca island

Breadcrumb_is

  • Heim
  • Lyf
  • Krabbamein

Astrazeneca Global Websites_is

  • AstraZeneca websites

title_is

  • Heim
  • Starfsfólk
  • Rannsóknir
  • Gagnlegar Vefsíður
  • Lyf
    • Miðtaugakerfið
    • Hjarta- og æðasjúkdómar
    • Meltingarfærakerfið
    • Krabbamein
    • Verkir og verkjameðferð
    • Öndunarfæralyf
    • Sýklalyf
  • Sitemap

Krabbamein

Árlega deyja milljónir manna í heiminum af völdum krabbameins. AstraZeneca er nú í hópi stærstu framleiðanda krabbameinslyfja í heiminum með breitt svið lyfja við þessum skelfilega sjúkdómi. Auk þess eru stundaðar viðamiklar rannsóknir á krabbameini bæði með hliðsjón af því að auka virkni þeirra lyfja sem þegar eru á markaði sem og að koma fram með ný lyf til að vinna á þessum hræðilega sjúkdómi. Sum krabbameinslyfjanna sem AstraZeneca framleiðir eru notuð til að meðhöndla annað en krabbamein t.d. kvensjúkdóma.


Helstu lyf

Nánari upplýsingar og aðgangur að sérlyfjaskrártexta fæst með því að smella á lyfjaheitin hér að neðan.
  • Arimidex (anastrozole)
  • Casodex (bicalutamide)
  • Tomudex (raltitrexed)
  • Zoladex (goserelin acetate)

Athygli skal vakin á því að upplýsingar um lyfin á íslensku eiga við á Íslandi og eru í samræmi við samþykktir Lyfjastofnunar.

Arimidex (anastrozole)

Arimidex (anastrozole) í töfluformi er mest seldi arómatasa hemillinn í heiminum sem notaður er við útbreiddu brjóstakrabbameini hjá konum eftir tíðahvörf. Arimidex kom fyrst á markað 1995. Arimidex hefur nú fengið skráða ábendingu til notkunar sem fyrsta meðferð við útbreiddu brjóstakrabbameini. ATAC rannsóknin (desember 2001) sýndi fram á að Arimidex er marktækt virkari í að halda aftur af einkennum brjóstakrabbameins hjá konum eftir tíðarhvörf sem eru ekki með langt genginn sjúkdóm. Að auki þolist Arimidex betur en tamoxifen sem hefur verið aðalviðmiðunin í þessari tegund brjóstakrabbameins.
Sérlyfjaskrártexti

Casodex (bicalutamide)

Casodex (bicalutamide) er í töfluformi og hefur anti-androgen virkni í meðhöndlun á krabbameini í blöðruhálskirtli. Casodex var se tt á markað 1995 sem samsett meðferð (með vönun ýmist með lyfjum eða skurðaðgerð) við langt gengnu krabbameini og síðan sem einslyfs meðferð við staðbundnu og langt gengnu krabbameini. Einslyfs meðferð með Casodex hefur nýlega verið samþykkt við krabbameini á frumstigi í blöðruhálskirtli, þ.e. sem skyndimeðferð eða sem stuðningsmeðferð við staðbundnu og langt gengnu staðbundnu krabbameini í blöðruhálskirtli.
Sérlyfjaskrártexti

Tomudex (ralitexed) 

Tomudex (raltitexed) er frumudrepandi lyf og er notað við langt gengnu ristilkrabbameini. Tomudex var þróað í samvinnu við Institute for Cancer Research í Bretlandi og the British Technology Group. Tomudex er innrennslislyf.
Sérlyfjaskrártexti

Zoladex (goserelin acetate)

Zoladex (goserelin acetate) líkist náttúrulegu LHRH (luteinizing hormone releasing hormone, leysiþáttur gulbúskveikju). Zoladex er notað við krabbameini í blöðruhálskirtli, sem stuðningsmeðferð á fyrri stigum brjóstakrabbameins hjá konum fyrir breytingaskeið eða meðan á því stendur. Einnig er það notað við einkennum legslímuvillu (endometriosis), sem formeðferð fyrir glasafrjóvgun og formeðferð við vöðvahnútum í legi. Zoladex er forðalyf sem er sprautað undir húð og er virknin í einn eða þrjá mánuði.
Sérlyfjaskrártexti
  • Ítarleg leit

Quick Links_is

  • Fréttir
  • Fjárfestar

Page Tools_is

  • Print_is
  • Bookmark this page_is

Legal notices_is

  • Einkarettur
  • Lagalegar upplysingar
  • © AstraZeneca 2010