• Go to navigation_is
  • Go to content_is
AstraZeneca island

Breadcrumb_is

  • Heim
  • Lyf
  • Meltingarfærakerfið

Astrazeneca Global Websites_is

  • AstraZeneca websites

title_is

  • Heim
  • Starfsfólk
  • Rannsóknir
  • Gagnlegar Vefsíður
  • Lyf
    • Miðtaugakerfið
    • Hjarta- og æðasjúkdómar
    • Meltingarfærakerfið
    • Krabbamein
    • Verkir og verkjameðferð
    • Öndunarfæralyf
    • Sýklalyf
  • Sitemap

Meltingarfærakerfið

Sýrutengdir kvillar, t.d. magasár, vélindabakflæði og meltingartruflanir eru mikið heilsufarsvandamál. AstraZeneca er leiðandi fyrirtæki í þróun lyfja gegn sýrutengdum vandamálum, með sýrudæluhemlunum Nexium (esomeprazól) og Losec (ómeprazól).

Meðal nýjustu lyfja okkar er Nexium, fyrsti sýruhemillinn sem þróaður er sem hreinn ísómer. Lyfið er nú á markaði í allflestum löndum heims og er notað við sjúkdómum af völdum bakflæðis frá maga í vélinda, til upprætingar Helicobacter Pylori ásamt viðeigandi sýklalyfjameðferð og sem langvarandi meðferð gegn aukaverkunum gigtarlyfja hjá sjúklingum sem þurfa að nota bólgueyðandi gigtarlyf


Að auki framleiðir AstraZeneca lyfið Entocort (búdesóníð) sem er notað gegn krónískum bólgusjúkdómum í þörmum, eins og Crohn´s sjúkdómi og Colitis Ulcerosa. Allir þessir sjúkdómar vega þungt í heilbrigðiskerfinu og leggja mark sitt á líðan margra sjúklinga.

Helstu lyf

Nánari upplýsingar og aðgangur að sérlyfjaskrá rtexta fæst með því að smella á lyfjaheitin hér að neðan.

  • Entocort (búdesóníð)
  • Losec (ómeprazól)
  • Nexium (esómeprazól)

Athygli skal vakin á því að upplýsingar um lyfin á íslensku eiga við á Íslandi og eru í samræmi við samþykktir Lyfjastofnunar.

Entocort (búdesóníð)

Entocort (búdesóníð) er sykursteri gegn bólgusjúkdómum í þörmum. Entocort er fáanlegt sem forðahylki, gegn Crohn’s sjúkdómi, og sem innhellislyf geg n Colitis Ulcerosa. Lyfið er fáanlegt í meira en 40 löndum.
Sérlyfjaskrártexti

Losec (ómeprazól)

Losec (ómeprazól) er sýrudæluhemill gegn sýrutengdum sjúkdómum. Losec kom fyrst á markað 1988 og hefur verið notað af tugmilljónum sjúklinga.

Lyfið hefur skráðar þessar ábendingar:

Bráðameðferð við magabólgum og /eða vélindabakflæði
Viðhaldsmeðferð við vélindabakflæði og /eða magasári
Skammtímameðferð við einkennum bakflæðis eins og brjóstsviða
Uppræting á Helecobacter Pylori (ásamt viðeigandi sýklalyfjum)
Við sárasjúkdómi í maga og skeifugörnum vegna meðferðar með bólgueyðandi verkjalyfum (NSAID’s)
Við sýrutengdum meltingartrufulunum
Við alvarlegu vélindabakflæði hjá börnum
Til að koma í veg fyrir ásvelgingu magasýru
Við Zollinger –Ellison heilkenni

Losec MUPS (multiple unit pellet system) töflur eru fáanlegar í 10 mg og komu þær fyrst á markað snemma árs 1998.
Sérlyfjaskrártexti

Nexium (esómeprazól)

Nexium inniheldur virka efnið esómeprazól og er sýrudæluhemill. Virknin felst í að hamla á móti lokaskrefinu í sýruframleiðslu magans og draga með því móti úr magni sýru sem maginn framleiðir. Þetta er fyrsta PPI-lyfið (úr ensku: Proton Pump Inhibitor) sem sýnt hefur fram á meiri virkni en Losec. Nexium er notað til að meðhöndla bæði nýgreinda sjúklinga og þá sem hafa verið í annars konar sýruhemjandi meðferð, m.a. með H2-hemlum, vægt sýrubindandi lyfjum og öðrum sýrudæluhemlum. Nexium er í töfluformi sem leysa má upp í ókolsýrðu vatni og drekka, en töflurnar má einnig brjóta. Þær má ekki mylja. Mikilvægt er að lyfjatöku sé ekki hætt nema í samráði við lækni. 

Nexium hefur hlotið ábendingu fyrir þessum sjúkdómum:

Vélindabakflæði, þar sem súrt innihald maga þrýstist upp í vélinda og veldur vélindabólgu og brjóstsviða (brunatilfinning sem á upptök sín í maga og dreifist upp í vélinda og háls)
Magasári eða skeifugarnarsári af völdum Helicobacter Pylori bakteríu. Meðferð felst í gjöf viðeigandi sýklalyfja og Nexium. Nýjasta skráða ábending Nexium er varnandi meðferð gegn aukaverkunum gigtarlyfja, hjá sjúklingum sem þurfa að taka bólgueyðandi gigtarlyf. Þá er Nexium bæði notað til að lækna magasár sem fylgja gjarnan í kjölfar töku bólgueyðandi gigtarlyfja og sem varnandi meðferð gegn slíkum aukaverkunum (maga- og skeifugarnarsár), einkum hjá sjúklingum í áhættuhópi fyrir að fá slíkar aukaverkanir. Þeir sem teljast í áhættuhópi eru sjúklingar eldri en 65 ára, sjúklingar sem eru á blóðþynnandi lyfjameðferð (t.d. Barnamagnýl) og sterameðferð og þeir sem hafa fyrri sögu um maga- eða skeifugarnarsár. Áhættan er margföld þegar sjúklingur hefur einn eða fleiri ofantalinna þátta og fer hún vaxandi með hækkandi aldri.

Nexium hefur reynst vel síðan það var fyrst notað hér á landi í nóvember árið 2000 og hafa fjölmargar alþjóðlegar rannsóknir leitt í ljós bætt lífsgæði þeirra sjúklinga sem notað hafa Nexium. Sjá frekari upplýsingar um Nexium hér:
Sérlyfjaskrártexti

  • Ítarleg leit

Quick Links_is

  • Fréttir
  • Fjárfestar

Page Tools_is

  • Print_is
  • Bookmark this page_is

Legal notices_is

  • Einkarettur
  • Lagalegar upplysingar
  • © AstraZeneca 2010