Miðtaugakerfið
Mikil þörf er á lyfjum við kvillum tengdum taugakerfinu og af geðrænum toga. Þessir kvillar koma ekki eingöngu niður á sjúklingunum, heldur bera bæði aðstandendur og samfélagið í heild oft mikinn þunga af þeim. Á þessu sviði er mikil þörf fyrir nýjar lyfjameðferðir og hefur AstraZeneca sett á markað lyf bæði við geðklofa og mígreni. Einnig eru í gangi fjöldi rannsókna á mörgum helstu kvillum miðtaugakerfisins. Geðklofi er alvarlegur sjúkdómur sem hefur áhrif á 0.5 - 1 % mannkyns . Algengast er að sjúkdómurinn greinist á aldrinum 15 - 35 ára. Mígren er taugasjúkdómur sem lýsir sér með miklum höfuðverkjaköstum og er algengi hans u.þ.b. 1 af hverjum 8. Sjúkdómurinn getur haft töluverð áhrif á daglegt líf þeirra sem af honum þjást.
Zomig Nasal: Sérlyfjaskrártexti Zomig Rapimelt: Sérlyfjaskrártexti
Helstu lyf
Nánari upplýsingar og aðgangur að sérlyfjaskrártexta fæst með því að smella á lyfjaheitin hér að neðan.Athygli skal vakin á því að upplýsingar um lyfin á íslensku eiga við á Íslandi og eru í samræmi við samþykktir Lyfjastofnunar.
Seroquel (quetiapine)
Seroquel (quetiapine) er lyf í töfluformi í flokki nýrra óhefðbundinna geðrofslyfja og er notað við geðklofa. Seroquel var sett á markað í Bretlandi og Bandaríkjunum árið 1997 og árið 1998 kom það á markað hér á landi.
Seroquel er nú á markaði í yfir 75 löndum og hefur verið ávísað á yfir 2 milljónir sjúklinga í Bandaríkjunum einum sér.
Nú standa yfir rannsóknir á notkun Seroquel í tvískauta geðhvarfasjúkdómi og geðrofum af öðrum toga. Verið er að þróa ný form lyfsins, en sem stendur er það eingöngu framleitt í töflum.
Sérlyfjaskrártexti
Zomig (zolmitriptan)
Zomig (zolmitriptan) er sértækur 5-hydroxytryptamine1B/1D (5-HT1B/1D) viðtaka örvi eða triptan sem notað er við bráðum mígreniköstum með eða án áru. Zomig er svonefnt annarrar kynslóðar triptan og er leiðandi í þeim flokki. Zomig töflur komu á markað 1997 og eru nú fáanlegar um heim allan. Zomig Rapimelt eru munnlausnartöflur með appelsínubragði sem leysast upp á mjög skömmum tíma á tungunni en það auðveldar inntöku án vökva. Zomig Rapimelt töflurnar eru nú fáanlegar í yfir 20 löndum. Að auki er Zomig til í formi nefúða sem er þægileg skjótvirk lausn fyrir mígrenisjúklinga. Nefúðinn kom á markað í Svíðþóð í janúar árið 2002 og verður sett á markað í fleiri löndum á næstu misserum.Zomig Nasal: Sérlyfjaskrártexti Zomig Rapimelt: Sérlyfjaskrártexti
