• Go to navigation_is
  • Go to content_is
AstraZeneca island

Breadcrumb_is

  • Heim
  • Rannsóknir
  • STYLE

Astrazeneca Global Websites_is

  • AstraZeneca websites

title_is

  • Heim
  • Starfsfólk
  • Rannsóknir
    • STYLE
    • Charm
    • Sportif III
    • Metropole
    • One
    • Lotus
    • Aurora
    • Cosmos
    • Stars
  • Gagnlegar Vefsíður
  • Lyf
  • Sitemap

STYLE

Tilgangur rannsóknarinnar er að bera áhrif og öryggi meðferðar þar sem eingöngu Symbicort er notað við astma, saman við bestu hefðbundnu meðferð við astma.

Meðferð þar sem eingöngu Symbicort er notað (Symbicort Single inhaler Therapy) felst í því að Symbicort Turbuhaler er tekið bæði sem viðhaldsmeðferð og einnig eftir þörfum sem berkjuvíkkandi lyf til að slá á astmaeinkenni.
Með bestu hefðbundnu meðferð er átt við að hver og einn sjúklingur fái þá bestu meðferð sem hentar honum að mati rannsakandans, og er samkvæmt viðmiðunarreglum um meðferð við astma.

Meginmarkmið rannsóknarinnar er að bera áhrif meðferðar þar sem eingöngu Symbicort er notað (Symbicort Single inhaler therapy) saman við bestu hefðbundnu astmameðferð hjá unglingum og fullorðnum með astma.

Annað markmið er að safna upplýsingum um öryggi meðferðar þar sem eingöngu Symbicort er notað hjá unglingum og fullorðnum með astma.

Rannsóknin er fjölþjóðleg, fjölsetra, opin, slembuð með 2 samhliða hópum. U.þ.b. 1000 sjúklingar með astma verða teknir inn í rannsóknina, þar af 100 hér á landi. Á Íslandi verða eingöngu teknir inn sjúklingar 18 ára og eldri. Meðferð stendur í 26 vikur og þurfa sjúklingar að koma í 4 heimsóknir til rannsóknarlæknisins á því tímabili. Í heimsókn nr. 1 ræðst það með slembivali í hvorn hópinn sjúklingurinn fer og hvaða meðferð hann fær, þ.e. meðferð með eingöngu Symbicort eða aðra bestu hefðbundnu meðferð.

Rannsóknin hófst í september 2005 og henni lýkur í nóvember 2006.
  • Ítarleg leit

Quick Links_is

  • Fréttir
  • Fjárfestar

Page Tools_is

  • Print_is
  • Bookmark this page_is

Legal notices_is

  • Einkarettur
  • Lagalegar upplysingar
  • © AstraZeneca 2010