Stars
STARS I rannsóknin er fjölþjóðleg, tvíblind rannsókn. Tilgangur hennar er að finna áhrifaríka aðferð til að meta hvort verkur eða sviðatilfinning ofarlega í kviði (dyspepsia) sé til komin vegna sýrumyndunar í maga. Borið verður saman áhrif af esomeprazole annars vegar og lyfleysu hins vegar.
Aðalmarkmið rannsóknarinnar er að meta einkennasvörun (þ.e. einkenni um verk eða sviða í efri hluta kviðar) meðal þátttakenda eftir vikupróf, sem mælikvarða til að spá fyrir um hvernig þátttakendur með eðlilegar niðurstöður úr speglun af efrihluta meltingarvegar svara 8 vikna meðferð. Í þessari 8 vikna meðferð er próf sem stendur í eina viku þar sem gefið er ýmist esómeprazól 40 mg daglega, 40 mg tvisvar sinnum á dag eða lyfleysa og fylgt eftir með 7 vikna meðferð með esómeprazól 40 mg daglega eða lyfleysu. Einkennasvörun í lok viku prófsins, er skilgreind sem summa einkennastiga s.l. 3 daga. Sjúklingur sem svarar 8 vikna meðferð skilgreinist sem sjúklingur sem fengið hefur samtals 0 eða 1 einkennastig s.l. 7 daga.
Þátttakendur eru u.þ.b. 1.500 og valdir af handahófi, hér á landi verða þeir 50. Rannsóknin hófst í nóvember 2002 og henni lýkur í september 2004.
Til baka
