One
ONE rannsóknin var íslensk rannsókn, en markmið hennar var að bera saman árangur og kostnað þess að gefa Nexium sem inniheldur virkaefnið esomeprazole einu sinni á dag eða eftir þörfum hjá sjúklingum með bakflæðiseinkenni.
Metin var ánægja sjúklings með meðferðina, kostnaðarmunur meðferðaformanna tveggja sem og annar kostnaður sem til féll í tengslum við bakflæðissjúkdóminn.
Alls tóku 139 sjúklingar þátt í rannsókninni á höfuðborgarsvæðinu, á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga Húsavík og á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Rannsóknin hófst í apríl 2001 og lauk í apríl 2002.
