• Go to navigation_is
  • Go to content_is
AstraZeneca island

Breadcrumb_is

  • Heim
  • Rannsóknir
  • Sportif III

Astrazeneca Global Websites_is

  • AstraZeneca websites

title_is

  • Heim
  • Starfsfólk
  • Rannsóknir
    • STYLE
    • Charm
    • Sportif III
    • Metropole
    • One
    • Lotus
    • Aurora
    • Cosmos
    • Stars
  • Gagnlegar Vefsíður
  • Lyf
  • Sitemap

Sportif III

SPORTIF III (Stroke Prevention using an Oral Thrombin Inhibitor in atrial Fibrillation) var fjölþjóða, handahófsröðuð, opin rannsókn með blinduðu mati. Tilgangur rannsóknarinnar var að bera saman áhrif warfarins og Exanta (ximelagatran) við að hindra heilaáfall (stroke) og segarek hjá sjúklingum með gáttatif. Jafnframt var athuguð tíðni annarra áfalla og blæðinga.

Warfarin er núverandi blóðþynningarmeðferð hjá sjúklingum með gáttatif, en Exanta er nýr thrombinhemill sem AstraZeneca hefur þróað. Margar rannsóknir hafa leitt í ljós verulegt gagn af warfarinmeðferð hjá sjúklingum með gáttatif. Hins vegar hefur sú meðferð ákveðna blæðingarhættu í för með sér og krefst því storkuprófa með jöfnu millibili. Exanta hefur ekki milliverkanir við mat, áfengi eða cytochrome P 450 kerfið og meðferð með því krefst ekki storkuprófa. Sami skammtur var gefinn öllum sjúklingum sem tóku Exanta, 36 mg tvisvar á dag.

SPORTIF III rannsóknin hófst í ágúst 2000 og lauk í ágúst 2002. Heildarfjöldi sjúklinga í rannsókninni var 3.407, þar af 28 á Íslandi, á Landspítala Háskólasjúkrahúsi Hringbraut.

Af þeim sjúklingum sem tóku Exanta fengu 40 heilaáfall eða annað segarek, þ.e. 1,6% árlega. Af sjúklingum sem tóku warfarin fengu 56 heilaáfall eða annað segarek, þ.e. 2,3% árlega. Er hér átt við alla sjúklinga sem fengu úthlutað annað hvort Exanta eða warfarin (intention to treat).

Af þeim sjúklingum sem kláruðu rannsóknina samkvæmt upphaflegri áætlun (on treatment), fengu 29 (1,3% árlega) af þeim sem tóku Exanta heilaáfall eða annað segarek en 52 (2,2% árlega) af þeim sem tóku warfarin. Þetta er marktækur munur (p=0,018).

Samanlögð tíðni dauðsfalla, aðalendapunkta og alvarlegra blæðinga var marktækt minni hjá sjúklingum sem tóku Exanta, eða 104 (4,6%), miðað við 143 (6,1%) hjá sjúklingum sem tóku warfarin (p=0,022).

                                                                                                Til baka

  • Ítarleg leit

Quick Links_is

  • Fréttir
  • Fjárfestar

Page Tools_is

  • Print_is
  • Bookmark this page_is

Legal notices_is

  • Einkarettur
  • Lagalegar upplysingar
  • © AstraZeneca 2010