Rannsóknir

Yfirlit
Rannsóknar- og þróunarfyrirtæki AstraZeneca eru víða um heim en þó aðallega í Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkjunum. Þar er unnið að rannsóknum á mismunandi sviðum læknisfræðinnar.Rannsóknir á vegum AstraZeneca hér á landi
AstraZeneca stundar rannsóknir hér á landi. Rannsóknirnar eru bæði stundaðar á þróunartíma lyfjanna og eftir að þau eru komin á markað. Rannsóknaferlið getur þannig spannað allan líftíma lyfjanna. Þær eru liður í fjölþjóðasamstarfi og stundaðar í samvinnu við margar þjóðir í Evrópu, Kanada og Bandaríkjunum. Þær rannsóknir sem AstraZeneca hefur staðið fyrir í samvinnu við íslenskar heilbrigðisstéttir eru meðal annars á sviði meltingarsjúkdóma, öndunarfærasjúkdóma og hjartasjúkdóma. Mismunandi er hversu margar rannsóknir standa yfir hverju sinni, en þeim hefur farið fjölgandi með ári hverju. Undanfarin ár hafa 3 – 4 rannsóknir staðið yfir samtímis.Rannsóknar- og þróunarfyrirtæki AstraZeneca
Rannsóknar- og þróunarfyrirtæki AstraZeneca eru víða um heim en þó aðallega í Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkjunum. Þar er unnið að rannsóknum á mismunandi sviðum læknisfræðinnar.
